Titrandi tunga, treg til að lesa!
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 19 desember
19.12.2007 01:06:06 / mallaj

Skáldskaparmjöðurinn skrifar hér

Ligg ég hér ein í svartasta myrkrinu og heyri níðþungar drunur berast um herbergið.. . Hrollur færist um fagurmótaðan líkamann þegar mér er litið út um gluggann. Gulur bjarminn frá götuljósum bæjarins lýsa upp sorgmætan himininn. Lágt á lofti situr grámyglað tunglið og horfit á mig niðurlútum augum... Það er þunglynt, svartir taumar huga þess halda geislunum inni svo þeir geti ekki skinið sínu fegurst niður á kaupþyrsta jarðarbúa í jólaösinni. Ég lít til hliðar og mér til skelfingar sé hvað veldur þessum drungalegu drunum. Við hlið mér liggur maður, hálfþakinn ábreiðu með lokuð augun, ég fyllist skelfingu..

 

Í ótta mínum færi ég mig á ystu brún rúmsins og held í mér andanum.... þar ligg ég um stund og reyni að átta mig á hlutunum... hvað er að gerast???

Þegar hugurinn róast og hjartað tekur sinn fasta sess, fletti ég ábreiðunni af manninum................. Þar liggur hann Þórður kærastinn minn steinsofandi eftir að ég veitti honum frygðarstund stuttu áður..... Hrotur hans hrista myndirnar á veggjunum og fá mig til að velta því fyrri mér hvort hann sé í raun mannlegur.....

 

Sælt veri fólkið á þessari skáldskapa nóttu.

Nú er vetur genginn í garð með sinni sönnu dulúð. Jólin fara að streyma inn með pakkaflóði og sykurskán. Ekki laust við örlitlum fiðring í mallakútnum :P haha

 

Prófatíð fer senn að ljúka og því fylgir að sjálfsögðu friðaróp því til heiðurs að vera laus úr prísundinni.

Ákvað að sletta inn einni færslu því skáldskaparguðinn bankaði örlítið uppá...

Hafið það gott alle sammen :P

Minni einnig á hina sívinsælu skoðanakönnun mér á hægri hönd :P

 

Speki dagsins: Sálin sínar sorgir syngur, særa þær nú sjálfið


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 13:01:08 / mallaj

And I said yes you look wonderful to night

jæja já blogg segiði... ég sé það að ég hef ekki bloggað í um 10 mánuðu... Ekkert svaka góð framför þar... en ég kem nú með eitt blogg núna og svo aftur eftir aðra 10.

 :)

En já ég átti ammæli í gær og fyrradag. 22 og 13 :P

Er nú reyndar bara búin að fá 2 ammælisgjafir frá kærastanum og viðhaldinu... Fékk demntshring og alles... Og nei ég er ekki trúlofuð :P búin að fá óþægilega margar spurningar útí þetta þegar ég segi fólki frá hringnum :haha:

Á nú reyndar von á 3 fögrum fljóðum í heimsókn til mín í kveld... bíð alveg svaka spennt sko :P

Fékk vægt sjokk áðan þegar ég sá að það eru bara 6 vikur til jóla... sláandi... Ég reyndar syrgi mjög þessar stundirnar.... ég fer í jólafrí 21 desember... Sem er alveg hræðilegt :whut: hund fúlt og grámyglulegt...

Annars ætla ég að láta undirskriftalista ganga, endilega sem flestir að skrifa undir... ég er nefnilega að krefjast þess að það verði snjór um jólin... Er búin að vera í bölvuðu stríði síðastliðin ár við veðurguðina... en vonandi bara að þetta virki..

En ég er samt alveg að muna ástæðuna fyrir því að ég hætti að blogga fyriri 10 mánuðum síðan... ég hef bara ekkert að segja........ Það gerist nú voða lítið...

En jú ég vil þakka henni Möggu minni fyriri dýrindis party síðustu helgi... Alveg splendin fjör þar á ferð.

 

Nóg í bili... ég þakka þá er hlýddu, góðar stundir.

:lol:   síjjjjjjja

Speki dagsins: Augun sjá allt en þó ekki sig sjálf.


» 9 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 16:42:20 / mallaj

Ég er ekki aðgerðarlaus :)

Jájá tað eru nokkrir dropar runnir til sjávar frá því síðast :)

Ég bauð kærastanum á hótel um daginn og út að borða og í rakstur og í nudd og ég veit ekki hvað og hvað... Man hvað ég öfunda hann :) Fórum á Domo og sjávarkjallarann, erum orðin alveg vel æfð í að borða með prjónum eftir þá helgi :)

En allavena er ég sko ekki búin að vera aðgerðarlaus.. O nini seisei, skellti mér barasta í eitt stykki bjóstaaðgerð í seinustu viku :)

En hinsvegar er hún Unsa mín alveg makalaus en við erum samt ekki munaðarlausar ;) Leyfum okkur svona eitt og annað á milli mála.

En já það er allavena ein utanlandsferð komin á hreint.. Fer til Danaveldisins í júní. Vonandi kíki ég nú líka eitthvert annað í sumrinu.

Haldiði ekki barasta að tengdó hafi boðið mér í brunch um seinustu helgi.. Mér leið alveg einsog ég væri heavy merkileg af því að hún var búin að baka helling og hafa alveg heavy fyrir þessu.... MMMMmmmmm en ég veit nú ekki alveg hvort það var allt útaf mér en sagan er skemmtilegri þannig :D

Ég er svo að spá í að fara jafnvel að stofna fyrirtæki... Samlokugerð Málfríðar... ég er allavena nokkuð viss að möllulokur myndu seljast betur heldur en línu samlokurnar.. Sjæs. ég er nebla orðin svo mikil húsfrú, smyr nesti fyrir hann dodda minn til að taka með sér í vinnuna á hverjum degi.. Og það vekur enga smá lukku.. Strákarnir í vinnunni dauð öfunda hann... hehe GAMAN.. Já þið vitið bara að því að ég geri ýmislegt fyrir rétta peninginn ;) En Doddi minn er samt eini sem fær að borga í blíðu bara svo að við höfum það á hreinu :)

Svo er bara valentínusardagurinn á morgun og konudagurinn um helgina.. vúbbí.. En ég hlakka nú samt meira til öskudagsins... Ekkert smá spennt að fara að labba niðrí bæ í franska þjónustukonu búningnum mínum og sníkja nammi :)

 

En já Ég vil skila yndislegri kveðju til rósu minnar... Hlakka til að fá þig heim ljúfið mitt...

Bæ í bili börnin góð... :*

speki dagsins: Eittsinn Joð ávallt Joð :)


» 13 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 14:24:48 / mallaj

Sjaldséðir eru hvítir hrafnar

Kæru lesendur og fastakúnnar. Gleðileg Jól, gott og farsælt 007 ár og þakka það liðna ;)

Furðuleg jól að baki og róleg áramót... Rósan mín kom heim og er farin aftur :( en að sjálfsögðu kætist maður yfir að unsan mín sé alkomin heim :)

Ég er bæði með hor, slef og hóst... síðan í endan á nóvember... samt er ég búin að vera á sýklalyfjum í 10 daga.. Helv. skottulæknar á skaganesi, nenna ekkertr að skoða mann neitt

Er í miklum ákvarðanaerfiðleikum með sumarið mitt.. Hef 3 utlanlandsferðir til að velja um.... Erfitt að velja og hafna... Endilega leggið orð í belg og veitið mér smá aðstoð...

Danmörk, herragarður með tengdófamilíu

Benedorm með staffafamílíunni

Ítalía með kæró

Lífið bara snýst ekkert um annað en óþolandi ákvarðanir :S úff

Annars voru hátíðirnar bara fínar.. er alveg enþá bumbult og með sykurskán á tönnunum :P

Mesta gleðin er samt sú að þessi blessuðu jólahlaðborð skulu vera búin... VÚBBÍ

well well.. hafið það gott ljúfin mín...

kv. Malla joð

Eitt í lokin fyrir kolllu mína:

Fer í dag á fallegum degi,

friðsæll gef upp andann.

Vesæl tár víkið úr vegi.

Vinaleg kveðja að handan.

Malla joð


» 14 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 21:39:27 / mallaj

Only for my dear lover Unnur

Endilega spreytið ykkur elskurnar :)

1. miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Dirty or Clean:

8. Tattoo eða göt:

9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

17. Getum við hist og bakað köku?

18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?

22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?

27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?

28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

 Látið vind um hárið blása :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 01:06:08 / mallaj

grand a thvi

hae grisir.... vildi bara monta mig og lata ykkur vita ad eg er i englandi....

hahaha abbo????

buin ad vera i 5 daga og framlegndi, kem heim a ammaelinu minu...

ogo gaman... :D

veit ad tid saknid min 8)

takka fyrir postkortin og gjafirnar sem eg er buin af fa sent hingad ut... alltaf gaman ad vita ad madur er svona omissandi

sjaumst klakabuar :haha:

kv. malla jay ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 20:53:38 / mallaj

Show must go on!!

Jæjajæja blogg segiði? Ég hafði nú ekki hugsað mér að byrja með bloggið aftur, en ákvað að skvetta svona fram einni færslu... Ætla að tileinka henni til heiðurs minna sætu vinkvenna, Unnar og Rósu Lindu :)

Búð að vera nokk furðulegt líf á klakanum eftir brottför minna nánu.. En þetta reddast svona.. vont en það venst.. sem betur fer á maður fleiri góða í kringum sig sem halda í manni lífinu.. Svo ég tali nú ekki um að þeir hjálpi manni að stunda mannleg tengsl svo maður lokist ekki bara inni með bók og þori ekki útúr skápnum sínum að ótta við óvissuna :)

Óska hér með eftir menningarlegum og listrænum vini sem vill koma með mér á danssýningar, í leikhús, á myndlistarsýningar og jafnvel að kíkjá á kaffihúsið Sirkus í fötum úr Gyllta kettinum og Frúnni í Hamborg :) múhahaha... Kanski maður skelli sér bara einn á kaffihús og bíði eftir einhverju álitlegu fórnarlambi.... Og þá er ég ekki að tala um pólverjana á mörkinni í þetta skipti :P

En já Rósa mín og Unzan mín þið eruð hetjurnar mínar :* elska ykkur til hjaranna á veröldinni :)

Aldrei að vita að maður skelli annarri færslu inn við tækifæri fer allt eftir viðbrögðunum sko :) Maður ætti nú að hafa nóg að tímanum þegar maður er kominn á forstjóravaktirnar :)

Heyrumst jafnvel um síðir ske kann að það verði fyrr meira að segja :)

Ætla að fara að leika við nýja vinarfórnarlambið :)

speki dagsins: Er einn vinur fer tekur annar við en hinn eini vin mun aldrei gelymt skal heldur lifa til eilífs en þegar aftur snýr verður fundur hlýr og aldrei mun ástin meiri... ég í þér án langs heyri... Ei skaltu hvíða því ei langt mun líða en ég man þig æ í hjarta mér sáðiru fræ og minningu sem oft ég að hlæ... fljótt flýg ég yfir sæ til að hitta þig... HÆ :*


» 12 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 00:16:38 / mallaj

já neinei

Ég nenni þessu ekki. Þetta er algjörlega tilgangslaust og tímaeyðsla :) Kveð bloggið í bili... kem kanski með comeback eikkutíman :)

Adios amigos....

Kv. Malla joð, bloggið kveður einsog gamalt leður...


» 14 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 21:35:15 / mallaj

Til hamingju ég :)

Hey Kids.....

Ójá ójá ójá... Haldiði ekki bara að ég sé komin í sumarfrí :) vúbbí.... Skemmtilegir tímar frammundan hjá mér..... Verst samt bara að ég er veik :/ ætla samt ekki að láta það stoppa mig í neinu... ætla bara að halda áfram að lifa í sjálfsblekkingu :haha:

Helvíti fínt staffaparty í gær.... Fyrir utan að ég var nokkuð veik og meikaði ekki shitt..... Ég er algjör lúði, haldiði ekki að ég hafi aftur lent í lyklaveseni... Nema í þetta skiptið voru það ekki lyklarnir af Baldvini heldur af húsinu :/ Þvílíkt og annað eins vesen... Eina fólkið sem er með aukalykla eru bræður mínir og mamma og pabbi... Og ég reyndi sko og reyndi.... Hringdi til Spánar og í Hafnarfjörð og Sveitina... en nei enginn gat reddað mér :/ En stelpan deyr sko ekki ráðalaus... Hringdi bara í hann Gísla Jóns vin minn og haldiði ekki bara að hann hafi boðið mér rúnt á körfubílnum sínum og híft mig upp á svalir :) Algjört æði..... Hann er sko með tæknina í lagi... alveg einsog Rómeo ;) Endalaust Takk Gísli minn.....

Bið að heilsa í bili :P

Speki dagsins: Oft má spara tíma fé og fyrirhöfn með körfu frá G. Jónssyni :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 22:50:45 / mallaj

I'm having the best times of my life...

Jæja kominn tími á eina brakandi færslu....

Færsluleysið er búið að stafa af vöntun á nördahæfileikum, takkaborðið mitt er eikkvað þráðlaust dót og ég er ekkert alltof góð í að ná tengingu í því...

Margt og ekkert búið að ské...sveittar vinnutarnir, hressar skemmtanir og hrikalegar veslunarferðir.

Þið sem hélduð að ég væri að djóka í síðustu færslu þá vil ég koma þvi á framfæri að mér er fúlasta alvara....ég er semsagt búin að kaupa mér 3 ofur svala hatta og mállingargræjur og meiraðsegja farin að þamba expresso einsog úngbarn með brjóstamjólk... Já ég er formelga orðin töff :) Ég er meira segja búin að ganga svo langt að ég er farin að semja aftur ljóð og bjó til eitt stykki ljóð um daginn með rími og stuðlum og höfuðstöfum og málaði mynd við... Dugleg ha??? *mont* :haha:

ohh vitiði samt hvað ég er mikill lúði.. Læsti bíllyklana aftur inní bílnum mínum í vikunni.. held að það sé alveg kominn tími á að láta gera aukalykla... vitiði hvort maður geti látið gera það eikkutstaðar á skaganum??? Óli minn takk fyrir að redda mér :*

Það er alveg marg skemmtilegt framundan hjá mér.... bíð spennt eftir að suamrið gangi í garð... Ég er að fara á bubbatónleika í laugardagshöllinni, svo er ég að fara í sumarfrí, svo er ég að fara út að borða á Skólabrú og svo er ég að fara í roadtrip. Er líka að spá í að fara á tónleika með David Grey. Svo er ég að fara til Akureyrar að hafa það nice í útileigu eða eikkvað :) Svo nottla bara sólin og fjörið og vinnan og allur pakkinn :)

Ég er alltaf að fatta betur og betur hvað ég á skrítna bestuvinkonu (UNNI)..... Það er allt útí roðamaurum í herberginnu hennar og fyrst panikkaði hún einsog flestir myndu gera... En nei nei svo daginn eftir þá bara voru þetta orðnir bestu vinirnir hennar... Hún var bara að kúra með þeim og spjalla við þá og skíra þá. Hún er búin að lesa sér helling til um þessa 1000 nýju vini sína og þurfti hún endilega að deila þeim fróðleik með mér líka.. Svo horfir hún á þá tímunum saman vera að labba í hringi og finnur svo sona einn og einn útvaldan sem hún kremur með puttanum þar til að blóðið frussast útúr þeim.... Smekklegt ekki satt????

Svo held ég að þessi árátta hennar sé farin að færast yfir á mannfólkið... Ég allavena leifði henni að sofa hjá mér í fyrranótt vegna maurafaraldsins... Og hún bara geðbilaðist... Horfði á mig tryllingsaugum og reyndi að kjæfa mig með kodda og pota í mig og ég veit ekki hvað og hvað... Ég var bara orðin hrædd um líf mitt á tímabili........ Ég er að reyna mitt besta til að koma Unni, a.k.a Mauramömmunni aftur til sjálfs síns og reyni að draga hana frá maurunum, bestu vinum hennar... Óska eftir hjálp :) tíhí luv you girly :D

Heyrumst kútarnir mínir.....

Malla joð..... Kaffihúsatýpa ;)

Speki dagsins: Einu sinni smakkað þú getur ekki hætt :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 02:15:33 / mallaj

I've got one hand in my pocked and the otherone is giving a high five :)

Hei beips....

Búin að vera alveg nokkuð sláandi helgi verð ég að segja :) Elska þegar eikkvað sláandi gerist...... Love it... ;)

Finst ég búin að vera ekkert smá mikið á ferðinni þessa viku... Borgarnes x2, Reykjavík, Sveitin x2, Sumarbústaður... Og bensínið í hámarki... ussuss :)

Já fínasta helgi... Afkossaði vinkonu mína og lánaði rúmmið mitt.. Góðgerðarstarfsemin alveg hægri vinstri ;)

Var að spá í að gifta mig í gær.. er samt eila hætt við, það er svo fokking dýrt... :haha:

Ég er búin að ákveða að vera geggjað kúl í sumar.. Ætla að kaupa mér helling af höttum og fara að drekka expresso og mála myndir... Finst ykkur það ekki kúl??

New favorid... tjekk it out..

Heyrumst loves... Verið svo dugleg að commenta við myndirnar ;)

Speki dagsins: Why be sad when you can be glad?? forger the troubles you had and get out of bed :)


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 17:38:51 / mallaj

OMG af hverju er hann ekki bara að drekka sinalco eða eikkvað??? :)

Já góðir hálsar, langt síðan maður hefur látuið sin fögur orð hér í belg. Páskarnir voru bara nokkuð huggulegir hjá mér:

  • Hélt party í nýju íbúðinni :)
  • Upplifði mestu þynnku í heiminum, sem entist notabene í 5 daga
  • Fór í sveitina
  • Grillaði
  • Baðaði og bónaði Baldvin
  • Fór í fótbolta ;)
  • Fór fínt út að borða og í bíografen í góðra vina hópi :)
  • Fékk leiðinlegasta málshátt ever: Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.
  • Horfði á heila seríu af sex and the city
  • Fór í göngutúr
  • Fór í party til Rósu
  • Skellti mér á páskaball
  • Gerði prakkarastrik
  • Þurfti að vinna á frídegi í hellings þynnku :S
  • That’s about it :)

 

Já svo átti ég nokkuð huggulegan sumardaginn fyrsta…. Grillaði með Unni minni,,, tókum alveg 3. rétta máltið á þetta… Mallaði svo alveg þrusugóðan kaloríubombu desert… man hann var góður :) 

 

Dagurinn í dag er búinn að vera helgaður gjafmildi hjá mér… þurfti alveg að halda aftur af mér þangað til mánaðarmóta :) 

 

Er búin að uppgötva nokkra galla á nýju íbúðinni.. Maðurinn sem á heima á móti mér er svo ótæknivæddur að hann er að safna bréfdúfum, alltílagi með það en  þær eru alltaf að skíta á bílinn minn.. Fokking pirrandi, spurning um að fara að fá sér kött eða eikkvað.. Svo eru allir 4 hundarnir sem eiga heima fyrir neðan mig alltaf að gelta á morgnanna…….. Frekar óskemmtilegt……

 

Er líka búin að gera aðra uppgötvun.. Einu sinni hélt ég því fram að það væri ekki til fallegur stationbíll… En ég verða að játa mig sigraða,  ég er búin að sjá einn gullfallegan stationbil.. Hann er alveg heavy huggulegur, ætla pottþétt að fá mér svona undir krakkastóðið mitt í framtíðinni  :P hann heitir Dodge magnum, alveg svaka töff, svartur of corse ;)

 

 

 

Hey já ég sé að það eruð flestir hreynar meyjar einsog ég ;)... tóku 60 þátt:

 

 

 

 



Tjékkið á uppáhöldunum :)  Hver veit nema það gæti verið þú :)

 

 

Gleðilegt sumar elskurnar mínar :*

 

Speki dagsins: Það sem ég man ekki gerðist ekki :)

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 22:21:15 / mallaj

hér og þar og allstaðar

Jæja börnin blíð... ég er ekki búin að vera neitt smá dugleg við að láta inn myndir. Tjékkið á því...

Ég er í fríi í dag og morgun, vinn miðvikudag.. fer svo í 5 daga frí.. NICE, tók mér bara langt páskafrí :) Verður sko nice og gaman

Nýtt uppáhald komið inn..

Endilega tjáið ykkur um myndirnar....

Later.

Speki dagsins: ég og þú erum sko gott krú..


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 22:42:10 / mallaj

The things that are pleasing you can hurt you somehow.

Húsið sem ég bý í er ekkert smá skrítið. Þegar það er rok úti þá heyrast alveg heavy fáránleg hljóð í því. Svona einsog þegar maður blæs í tóma glerflösku, nema bara miklu meira. Svo þegar ég er í sturtu þá er vatnið alltaf að flakka úr heitu í kalt, geðveikt pirrandi. Svo er sturtuhausinn alltaf að leka svona niður... Svakalega pirrandi. Er alveg að bilast á þessu.... Þarf sko að fara að ræða við hann föður minn að láta hann laga þetta. Ég er samt geggjað fegin að ég sé ekki með ofskynjanir eða eikkvað... ég myndi vera að deyja úr hræðslu....

Ég er geðveikt mikið að spá í hvað ég á að gera við alla peningana sem ég er að þéna........... Ætti ég að safna mér og kaupa svo íbúð... Mig langar samt geggjað að kaupa mér dúnsæng og dúnkodda eða fartölvu... eða bara að halda áfram að eyða í vitleysu............... Wtf, ætli ég reyni ekki bara að spara....tjáið ykkur kjútís...

Speki dagsins: ef húsið er reymt skal vitið vel geymt.


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 14:42:39 / mallaj

Long time no seen

Jæja jæja þá er maður fluttur :) Nokkuð fínt bara. Bý núna í pínkuponsu dúkkuíbúð :)

Netið mitt er loksins komið í lag... lítið samt sem hefur drifið á mína daga, búin að vera að vinna bara einsog allways.

 Fór á mat-sýninguna á föstudaginn, hafði alveg nokkuð gaman af því... Það er að koma á markað sykurskert kókomjólk.. Smakkaðist alveg nokkuð vel, mæli alveg með henni.. Svo smakkaði ég fræ og allskonar sull. Um kvöldið fór ég svo úr að borða á Grillið á Hótel Sögu... Vá hvað það var geggjað... Þetta var alveg hrikalega flottur og góður matur. Fékk alveg 7 rétta máltíð. Var alveg næstum sprungin. Í stuttu máli sagt borðaði ég hörpuskel, humar, sandhverfu, myndtusorbet, foigras og hreyndýraterrine, dádýr og vanillubrulée. Massa gott sko.

Stóð mig mjög illa í aprílgöbbum, er ekki alltof góð í þessu :S

Hey komin ný uppáhöld kids :)

Well, got stuff to do.. Later

speki dagsins: góður matur er gulls ígildi :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti